8.6.2008 | 09:41
Þeir sem skulda ball og bjór :)
Enn eiga einhverjir eftir að borga ball og bjór, endilega gerið það sem fyrst. Við bíðum svo eftir fleiri myndum .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2008 | 22:16
Myndir komnar inn frá Seldalnum
Ég (Bobba) setti inn nokkrar myndir frá Seldalnum. Vona að þið njótið vel. En þetta kvöld var mjög gott eins og laugardagskvöldið líka. Þegar við mættum í Seldalinn stóðu Helgi og Ægir við stóra holu (ekki þó drullupyttinn sem Sella datt í forðum daga okkur öllum til sælla minninga ) og voru að grilla læri. Viggi var svo inni í fjósi að skreyta og fór hann alveg á kostum í skreytingunum, kerti, dúkar og frábærir High School Musical diskar, eitthvað sem smellpassaði á hópinn . Dalli fékk það hlutverk að fara inn að hita sósuna en eitthvað gleymdi hann sér og hélt að einhver annar ætti að fylgjast með sósunni með hann fylgdist með einhverju öðru og það var því ,,smá" brunabragð af henni en það var svo sem ekkert sem einn kaldur bjór gat ekki falið. Hegðunareinkunnir frá Hallormstað voru gerðar opinberar en þær fundust við tiltekt á skrifstofu áfangastjórans í VA . Mig minnti að bekkurinn sem ég var í hafði verið svo óþægur en svo var ekki, allir með A og B í hegðun en í hinum bekknum, þar voru villingarnir greinilega! Fjórir nemendur sem fengu C í hegðunareinkunn . Hverjir haldið að það hafi eiginlega verið?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.6.2008 | 08:37
Takk fyrir frábæra helgi!
Frábær helgi afstaðin og nú er bara að koma inn
nýjum myndum af okkur FLOTTU krökkkunum í ´74
árganginum. Það er spurning hvort að við færum
okkur yfir á 123.is eins og rætt var um í Seldalnum.
En, við megum ekki gleyma að borga
ballið og bjórinn!!
Endilega leggið inn á reikninginn okkar 3.000 kr. en
það er 1000 kr. fyrir bjórinn og 2000 kr. fyrir ballið.
Reikninsnúmerið okkar er í færslu hérna fyrir neðan.
Muna að senda kvittun á bobba@va.is
Kveðja, Villa Sigga
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.5.2008 | 12:21
*
STÓRI dagurinn er
runninn upp!!
Hittumst HRESS í Seldalnum kl. 19:00
í kvöld.
Hansi á rútunni ætlar svo að skutla
okkur heim
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.5.2008 | 08:56
Ath ! gjaldkerinn var böstaður :o)
Smá vitleysa var í sl. færslu. Það er varðandi útlagðan kostnað en nú er það komið á hreint og hann mun vera 7.000 kr. fyrir per mann + 1850 kr. fyrir maka. Reiknisnúmerið er í sl. færslu.
Kveðja, ................... rugludallarnir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2008 | 21:58
Dagskrá og kostnaður !
Þá er þetta allt að smella saman. Kostnaður fyrir bekkjarmótið er 7.000 kr. á mann og 1.850 kr. fyrir maka. Í þessu er innifalið matur á grillið í Seldal á föstudag, matur í Egilsbúð á laugardag, hattur merktur okkur og blóm á leiðið hennar Önnu. Þeir sem ætla síðan á ballið á laugardagskvöldið kaupi sér miða í Egilsbúð, miði á ballið kostar 2.000 kr.
Vinsamlegast leggið inn á eftrifarandi reikning fyrir hádegi á fimmtudag.
Reikninsnúmerið er: 1106 - 05 - 402213, kt. 190374-5729 og sendið kvittun á netfangið bobba@va.is
Okkur stendur til boða að fá bjórkút sem er ca. 50 bjórglös á 16.000 kr. og ef allir taka þátt er kostnaður vegna hans 800 kr. á mann. Þeir sem vilja taka þátt endilega kommentið svo hægt sé að taka ákvörðun sem fyrst.
Dagskráin:
Föstudagur:
kl. 19:00. Grill inn í Seldal - Helgi og Ægir sjá um að framreiða flottar veitingar af þeirra einstöku lagni ATH, ekki er komið á hreint með rútu til þess að keyra okkur heim en...... það er í vinnslu.
Laugardagur:
kl. 13:00. Hittingur í Nesskóla. Grímur Magnússon hinn eini sanni ætlar að leiða okkur um gamla góða skólann okkar.
Eftir það göngum við út í kirkjugarð að leiði Önnu bekkjarsystur okkar.
kappróður - Bekkurinn tekur þátt í kappróðri og ætlar sér að ná góðum árangri þar sem og í öllu öðru sem við tökum okkur fyrir hendur !!! - hverjir vilja taka þátt? Dregið verður í liðin á föstudagskvöldið og ein létt æfing tekin á þurru landi, þ.e.a.s. inn í Seldal í heitapottinum. GO við !!!!!!
kl.20:30. Mæting í Egilsbúð og maturinn verður borinn fram kl. 21:00.
Í boði verður:
BRAUÐVEISLA -
3 teg. Brauð
2 teg. salöt
Rautt og grænt pestó
10-14 teg. Ostar
Brauðstangir og brauðstangasósa með með mozarellaosti
Heitur brauðréttur
Litlir brauðbitar með skinku, osti, salati, smurðir með pestó og smurosti.
Snakk og ídýfur á borðum
Gos
Þar á eftir er BALL og TJÚTT með engum öðrum en Páli Óskari fram á rauða nótt!!
Siggi, mundu eftir gítarnum svo hægt sé að slá á létta strengi eftir ball þar sem enginn fer heim strax eftir ballið
Svo er bara að mæta í hópsiglinguna á sunnudaginn kl. 11:00 HRESS OG KÁT að vanda.
Kveðja, nefndin.
Bloggar | Breytt 28.5.2008 kl. 09:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.5.2008 | 22:42
Jæja, þessir ætla að mæta !
Nú var nefndin að funda heima hjá Villu Sigga og allt er að smella saman. GAMAN, GAMAN
Þessir aðilar eru búnir að skrá sig:
Helgi Guðmunds
Viggi Vigga
Siggi Óla
Villa Sigga
Bobba
Dalli
Arnfinnur Ægir
Birna Ágústa
Sigríður Þrúður
Katrín
Þórey Kristín
Guðrún Egils
Berg Valdimar
Heiðrún
Matti
Valdís
Pétur Heiðar
Vilborg Elva
Anna Bergljót
Birkir Ben
Lilja Salný Gulla Möggu Sigga Hall
Hvað með ÞIG????
Nú er bara um að gera að skrá sig.
Endanlega dagskrá verður komin inn á síðuna á þriðjudagskvöldið með verði og ÖLLU
Kveðja, nefndin
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2008 | 00:20
Við aulýsum eftir eiganda á......
FLOTTU naríunum með krókudílunum á!!!!!
Eigandi vinsamlegast gefi sig fram, spurningin er hvort þær séu til ennþá til og þá hvort þær séu enn í notkun?
KVEÐJA, hin eina sanna GUÐRÚN.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
22.5.2008 | 00:06
Fullt af SKEMMTILEGUM myndum !
Jæja, nú er búið að setja inn fullt af flottum myndum af flottum krökkum sem kunnu og KUNNA að skemmta sér.
Þessar myndir eru í boði Heiðrúnar !
Við vorum að koma af fundi í Egilsbúð og þar voru Helgi og Ægir mættir og byrjaðir að hita upp og skipuleggja grilleríið sem haldið verður í Seldal - búið að fá leyfi hjá Vigga og co.
Hattarnir eru komnir í vinnslu og útgjöldin (sem verða ekki mikil) birt síðar.
Á næstu dögum koma inn fleiri myndir og gaman væru ef sem flestir tækju sig til og skelltu inn þeim myndum sem eru byrtingarhæfar
Nú er bara að safna saman góða skapinu, skemmtilegum minningunum og mæta á staðinn !!
Kveðja, Guðrún, Villa Sigga og Heiðrún
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Velheppnaður árgangur, frábærir Nobbarar !
Spurt er.....
Eldri færslur
13 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar